15.7.08

færeyjar og gleði

jemm ... þá hef ég komið til færeyja ... eða þannig ... komum inn í fuglafjörð sem að er afskaplega lítill bær og lítið var að frétta þar, en hressandi að geta strikað enn eitt norðurlandið af listanum ... ég sá nú bara ekki neitt meira af eyjunum, var að vinna um borð, en vonandi gefst færi á því síðar að skoða sig betur um ... ef allt gengur eftir með rúgbrauðið þá ætti það alveg að vera möguleiki ...

ég var kominn með einhverja pælingu ... en hún er dottin út ... seinna bara ...

9.7.08

afmælispæling

í dag er ég 26 ára ... veeiiii ... skrýtinn aldur og skrýtin tala ... en já ... ég man eiginlega ekki eftir því hvenær ég hélt eitthvað síðast upp á afmælið mitt ... frá 12-17 var ég í sveit ... jú þegar ég varð 17 ára vildi svo skemmtilega til að um kvöldið var ball í njálsbúð ... hressandi ... já svo hefur maður alltaf eitthvað bara verið á sjó og svona ... þegar ég varð 20 (mikilvægasta afmæli í heimi) var ég austur á breiðdalsvík ... pabbi hringdi í mig daginn áður og óskaði mér til hamingju, feill ... svo hefur maður meira og minna bara verið á sjó ... í fyrra fórum við valli saman á argentínu að éta, enda á hann afmæli 2. ... þetta var einhverntiman á milli 2. og 9. ...

annars finnst mér þetta ekkert of mikilvægt ... að halda eitthvað sérstaklega upp á daginn sem að maður datt í heiminn ... þetta er jú víst dagur sem maður hættir að skrifa eina tölu og skrifar aðra ... maður dettur á milli markhópa hjá gallup ... núna er ég sjálfsagt kominn í 26-90 ára hópinn ... ég þori varla að leggja mig af hræðslu við hvíta skeggið sem er yfirvofandi ...

apple gaf mér frábæra afmælisgjöf ... ipodinn minn gafst endanlega upp rétt eftir miðnætti ... núna er það eina sem kemur á skjáinn mynd af verulega óhamingjusömum ipod með upphrópunarmerki við hliðina á ... veiii ... takk steve jobs ... takk fyrir að stilla ipodana þína á að eyðileggjast eftir tvö ár í notkun ...

8.7.08

sigur rós og hvítt skegg

ég hef komist að því að ég get alltaf hlustað á sigur rós ... alveg sama í hvernig skapi ég er og hvað er að gerast ... alltaf get ég hlustað á þessa snillinga, helst tónleikaupptökur ... hróarskelda 2003 er uppáhalds, kanski vegna þess að ég var þar sjálfur ?

já .. ég hef verið að taka eftir ískyggilega mörgum hvítum hárum í skegginu mínu .. ekki gráum ... skjannahvítum ... hvað er málið með það? er aldurinn farinn að færast svona hratt yfir að ég er farinn að "grána", eða öllu heldur "hvítna" áður en ég verð 26? ... ekki hresst ... eða kanski er það bara hresst ... ætli ég verði töff með skjannahvítt skegg?

pantaði mér 6 bækur frá amazon ... reyndar efast ég um að nokkur hér hafi mikinn áhuga á þeim, aðallega eru þetta pocket reference bækur fyrir meganörda eins og mig, að vísu tók ég líka 2 bækur eftir Keith Olbermann og svo tvær taoisma bækur ... þannig að 2 meganördabækur, 2 heimildabækur og 2 trúspekibækur .... og þær koma í ágúst ... vííííjjjj

5.7.08

fiskur

jebb ... það er víst goslokahátíð í vestmannaeyjum ... og þar af leiðandi mikið fyllerí, en við erum á sjó að græða milljónir, mokfiskerí og makrílinn er góður við okkur ...

maður er hálf slojj eitthvað klukkan hálf sex á laugardegi, nývaknaður og ekkert að frétta ...

já hér gerist lítið sem bloggandi er um, maður er bara inni í hausnum á sjálfum sér að pæla og plana, svona á milli þess sem maður er að vinna ... kanski dettur inn pæling í kvöld ... vona það ... þetta er hálf aumt ... bara rétt til að láta vita að maður sé á lífi ...

3.7.08

næturvakt og hells angels

jebbs ... ég fékk næturvaktina ... sem er ... hresst ? veit ekki alveg hvað mér finnst um það í rauninni, ég verð meira einn núna ... úff ...

allavega, núna er komin voða móðursýki í alla um að hells angels séu nú ábyggilega komnir til landsins og við munum áreiðanlega öll deyja í hörmulegum slysum af þess völdum ... en er það svo slæmt? ... hells angels vilja vissulega stunda eiturlyfjaviðskipti og aðra glæpastarfsemi, og vilja helst enga samkeppni í þeim efnum ... sem þýðir að allir lettarnir, litháarnir, rúmenarnir, pólverjarnir og þetta lið eru allt í einu komnir með hóp gegn sér, sem ólíkt löggunni, þarf ekki að fylgja neinum reglum og geta tekið sínar ráðstafanir gegn þeim með "nýjum" aðferðum ... ég verð bara að segja að ég vil frekar að hér séu danskir og norskir hells angels heldur en milljón litlar tæju og pólverjaklíkur allir að smákrimmast og vera hálfvitar ... ég sagði FREKAR ... helst myndi maður auðvitað vilja að ekkert svona væri að frétta, en það mun víst bara aldrei verða svo aftur ... ísland er komið á kortið, og fólk kemur hingað í leit að betra lífi ... neitum þeim um aðgang, ísland er fullt ... grín ...

2.7.08

mynda .... já ....


já ... ég er að vinna í að koma þeim myndum sem ég ákvað að setja á netið í "netform" ... þeas aðeins að myndvinnslast í þeim, breyta stærð og allt eftir því ... en hér gefur allavega að líta mynd af kortinu mínu eins og það leit út eftir ferðina ... ágætist spotti að baki eins og sést, og mörg mörg ný lönd komin á afrekaskránna ...

annars er það helst að frétta að ég er bara kominn aftur um borð í huginn ... það er verið að vinna í að landa úr skipinu og svo verður víst bara haldið á sjó við fyrsta tækifæri að ég held ...

þangað til næst ...

1.7.08

amsterdam og heim á ný

já amsterdam var afslappandi ... eftir æsispennandi lestarferð heim frá vín var mjög fínt að skella sér inn á hótel og leggjast í mjúka mjúka rúmið ...

amsterdam kom út úr skápnum sem algert snilldar pláss, og hlakkar mig mikið til að fara þangað aftur ...

nú, hasarinn var alls ekki búinn, því þegar við valli ákváðum að skella okkur til eindhoven, til að fljúga heim, þá vildi ekki betur til en svo að það bilaði lest á teinunum rétt fyrir framan okkur og þá þurftum við að stoppa ... afar hresst ... töfðumst um klukkutíma, sem að gerði okkur afar, afar knappa á tíma ... flugvélin átti að fara í loftið klukkan 12:55 ... eftir mikið stress og öskur á starfsmenn hollenska lestarfélagsins sátum við í lestinni dauðstressaðir, allavega ég, og horfðum á klukkuna milli þess sem að var hringt á flugvöllinn og reynt að sannfæra starfsfólkið um að við værum í alvörunni að koma, en holland er ekki ísland og okkur bara sagt að þegja og koma á réttum tíma ... síðasti séns á að tékka sig inn var kl 12:15 ... hlupum í leigubíl og öskruðum "laggó" ... taxinn gaf allt í botn, handbremsubeygja á planinu fyrir framan, 25% tips og við rukum inn ... tékkuðum okkur inn kl 12:16 ... og þá var mér létt ...

lentum heima eftir að okkur fannst afar stutt ferðalag, keyptum sígarettur, bjór, koníak og tyggjó í fríhöfninni og héldum af stað heim á leið ... rúmið mitt er þægilegt, og oft varð manni hugsað til þess þegar reynt var að sofna í ógeðslegum austur evrópskum lestum á leiðinni ... en þegar allt kemur til alls þá var það ævintýri, og ég vildi jafnvel frekar vera að halda því áfram en að vera hér ...

en já, kominn heim, náði í bílinn til læknisins áðan og núna er brúmmi hress ... og svo verður farið á sjó barasta á morgun ... allt að gerast, en næsta frí er víst yfirvofandi og kemur að því von bráðar

þangað til næst ...